Til ábendingar óttaslegnum

Það virðist hafa gripið um sig mikill ótti hér á landi þess eðlis að formleg umsókn til Evrópubandalagsins jafngildi aðild.  Það má í þessu sambandi benda á að nágrannar okkar norðmenn hafa ekki minna en þrisvar sinnum skilað inn umsókn.  1963 var umsókn þeirra neitað af Frakklandi, 1972 var aðildarumsóknin felld í þjóðaratkvæðagreiðslu sem og 1994.  Gera má ráð fyrir að norðmenn hafa í þessum þjóðaratkvæðagreiðslum vitað hvað þeir voru að kjósa um.

Skyldi vera að þeir sem eru svo á móti því að send verði inn umsókn treysti ekki íslendingum fyrir því að geta kosið "rétt" í þjóðaratkvæðagreiðslu?  Kanski eru íslendingar svona vitlausir að ekki er hægt að treysta þeim fyrir sjálfum sér?


mbl.is Niðurstaða um ESB á hádegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einmitt

Var það ekki óþægilegur sannleikur Al Gore að yfirborð sjávar myndi hækka allt að 7 metrum? Samkvæmt þessu á að hækka þetta í 21 metra núna. Ég myndi nú frekar kalla þetta óþægilegt bull, því eftir því ég sem ég get lesið mér til um þessar hrakfallaspár er reiknað með að yfirborð sjávar muni geta hækkað um 10-25 cm til næstu aldamóta. Hollendingar þurfa því að byrja að skipuleggja 1-2 cm hækkun á sínum varnargörðum á 10 ára fresti og veðja á að þessi spá sé í einhverjum tengslum við raunveruleikann.

Ég er farinn að gruna það illilega að þessi hrakfallaspá sé viðskiptalegs eðlis og miði að sölu fjölmiðla meira en nokkuð annað. Eins og fuglaflensu heimsfaraldurinn, og kannski núna þessi svínaflensa. Árlega látast 36.000 manns af völdum venjulegrar flensu í USA, hingað til er STAÐFESTUR fjöldi látinna af völdum svínaflensu 7.

Kannski er eina leiðin til þess láta ekki hafa sig að fífli að sleppa því algerlega að lesa fjölmiðla.


mbl.is Þrefalt meiri hækkun sjávar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkur hroki!

Ég veit ekki hver skrifaði þessa "frétt" en það er auðvitað alger þvæla að íslensk svín hafi aldrei fengið flensu.  Ég þekki mörg íslensk svín og ég man ekki betur en að þau hafi fengið flensu jafnt sem aðrir.  Ég man t.d. eftir þýskukennaranum mínum (nefni engin nöfn) og veit það fyrir víst að hann fékk amk. einu sinni flensu.  Það eru mörg önnur dæmi sem ég ætla ekki að telja upp hér, en spurningin sem maður getur spurt sig er hvaða erinda mbl er að ganga með svona misvísandi fréttaflutningi. 
mbl.is Íslensk svín hafa aldrei greinst með inflúensu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lengi má ljúga að sjálfum sér

Tyrkir þverskallast enn og aftur að viðgangast ábyrgð á þessu þjóðarmorði. Það er hreint með ólíkindum að þeir geti upp með þennan hroka og sögufölsun. Lesið og fræðist;

http://en.wikipedia.org/wiki/Armenian_genocide

Hvernig hefði það verið ef Þýskaland hefði farið í samskonar þrætur um helför nasista?  Það hefði væntanlega einangrað þá algerlega í alþjóðlegu samstarfi.  Þjóðir hafa einangrast fyrir minni sakir, eins og td. Kúba.  Ég mæli með því að tyrkir verði einangraðir þangað til þeir taka á sig sökina.

 


mbl.is Tyrkir ósáttir við Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju X-D

Í fyrsta lagi;

það er ótrúleg ókurteisi að breyta lögum um seðlabanka.

Í öðru lagi;

íslenska krónan fellur auðvitað á meðan það er NORSKUR seðlabankastjóri.

 Í þriðjalagi;

Það er alger skömm að forsætisráðherra Íslands skuli þiggja ráð frá öðrum ráðherrum.

 

Þar með er það ljóst að þessi ríkistjórn er með öllu óhæf og lýk ég hér máli mínu.

Kjósið SjálfstæðisFLokkinn! 

 


mbl.is Þvermóðska Jóhönnu gerði hana að forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins

Mig hefur lengi dreymt um að geta bannað lopapeysuna mína. Að þetta sé nú hægt að gera, og það á netinu er öllum vonum framar. Vonandi verður bráðum hægt að banna sokkana mína líka, því ekki veitir af því.
Yfir höfuð er það stórkostleg framför að einstaklingum sé nú boðið upp á að stunda persónulega löggjöf. Reyndar hefur það verið hægt, en með þeim annmörkum að enginn annar en viðkomandi einstaklingur hefur vitað af því. Núna get ég bannað lopapeysuna mína, og allir geta farið inn á netið og séð það með eigin augum; "Já, hann Jón er búinn að banna lopapeysuna sína".

Þetta á án vafa eftir að verða vinsæl þjónusta, og ekki síst á þessum krepputímum. Hvað er betra, þegar maður situr slyppur og snauður, atvinnulaus og aumur en að fara bara inn á netið og banna helvítis lopapeysuna?

Ég bara spyr.


mbl.is Hægt að hanna sína eigin lopapeysu á netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynhneigð forsætisráðherra

Ég man ekki eftir því að kynhneigð forsætisráðherra hafi verið mikið rædd hingað til og mér finnst það skrýtið að gera þurfi slíkt að umræðuefni. Forsætisráðherra gegnir ekki hlutverki sínu af sökum kynhneigðar sinnar.

Í Noregi er Hægri maðurinn Per-Kristian Foss samkynhneigður í sambúð með öðrum manni. Hann var fjármálaráðherra 2001-5 og er mikið í sviðsljósinu. Aldrei verður norðmönnum þó kynhneigð hans tíðrædd, enda kemur hún málinu bara ekkert við. Hann er þar að auki mjög fær stjórnmálamaður, kemur vel fyrir og er flokki sínum góð auglýsing. En sem sagt; ekki af því að hann er samkynhneigður.


mbl.is Jóhanna vekur heimsathygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Fréttaflutningur"?

Mér finnst þetta vera lágkúrulegur "fréttaflutningur" morgunblaðsins. Hér er vitnað í nafnlausan gogg í Sjálfstæðisflokknum sem vill koma höggi á fyrrverandi meðstjórnarmenn. Kallast þetta góð blaðamennska? Hefði ekki verið nær að ná tali af nafngreindu fólki úr báðum flokkum og borið þetta undir þau til þess að þetta gæti talist blaðamennska?

Sama gamla sagan. Hefur morgunblaðið EKKERT lært af hremmingum undanfarinna mánuða?


mbl.is „Ótrúlega ómerkilegt“ af Samfylkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óvenjulegt en eðlilegt

Íslensk þjóðstjórn er í upplausn og aðstæður eru vægast sagt óvenjulegar. Við stöndum frammi fyrir stjórnmálalegri ringulreið sem getur orðið þessari þjóð dýrkeypt. Þess vegna er það eðlilegt og æskilegt að forseti gangi skörunglega fram og sýni sig sem verðugur og óflokksbundinn umboðsmaður þjóðarinnar. Mikilvægt er að íslendingar standi á bak við forseta sinn og veiti honum það siðferðislega umboð sem hann þarfnast til þess að sigla þjóðarskútunni í örugga höfn.

Ég skora á fólk að láta gamlar þrætur liggja milli hluta og fylkja liði bak við forseta sinn. Oft er þörf en nú er nauðsyn.


mbl.is „Óvenjulegt frumkvæði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef sendandinn væri Ísrael

Það sem Konungur Sádí-Arabíu er að gera er það sem Ísrael ÆTTI vera búið að gera. Þetta er lykillinn að varanlegum friði. Ég minnist þess ekki að ísraelsk yfirvöld hafi gefið út nokkra yfirlýsingu sem sýnir hina minnstu samúð með saklausum fórnarlömbum "helfarar" þeirra. Það er vegna þess að þeir hafa enga samúð með þeim. Svo einfalt er það og það er einmitt það sem gerir þeim kleyft að stunda þessa helför.

Ef Ísrael viðurkenndi og þyrði að horfast í augu við þær þjáningar sem palestínumenn hafa gengið í gegnum undanfarin 60 ár og tæki sína ábyrgð á þeim væri fyrsta og mikilvægasta skrefið í átt til friðar og fyrirgefningar tekið. Fyrr en þetta gerist mun allt sitja við það sama og allir búa við hrellingar og blóðsúthellingar. Að sama skapi þurfa palestínumenn að skilja hverjar fórnir ísraela hafa verið og taka ábyrgð á þeim.

Þessi helför hefur gert vonir um frið á þessu svæði að atlægi.


mbl.is Gefur milljarð dala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband