Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009

Blaðamennska á heimsmælikvarða

Enn slær mbl.is heimspressunni við með hreint ótrúlegri blaðamennsku.  Hér er fréttaflutningurinn kominn á æðsta stig, sem um margt minnir á japönsk haiku-ljóð.  Enn eigum við samt eftir að sjá þetta form í sinni hreinustu mynd, sem er þegar fréttirnar eru fluttar sem stutt prump.  Það er væntanlega stutt í það.
mbl.is Segir stjórnarandstæðinga óvini Guðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einfalt vandamál, einföld lausn

Það kemur reyndar ekki fram í fréttinni hvað vandamálið við að vindorkubúum fjölgi svona mikið sé, en ef það er vandamál er lausnin einföld;  bara rífa nokkur þeirra eða bara slökkva á þeim.  Og svo geta þeir nú reynt að hugsa aðeins áður en þeir djöfla upp jafngildi 17 kárahnjúkavirkjana næst.  Persónulega held ég að kínverjar séu á einhverju steraflippi.  Einn daginn hefur enginn heyrt um þá, næsta dag eru þeir 1,5 miljarðar eða þarumbil.  Einn daginn eru bandaríkjamenn bestir og ríkastir, næsta dag eiga kínverjar heiminn.  Ekkert skrýtið eiginlega að þeir byggi OF mörg vindorkubú. 
mbl.is Vindorkubúum fjölgar of hratt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband