Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Áfengissjúklingurinn Ísland

Það er nærtækt að líkja Íslandi og íslendingum við áfengissjúkling og fjölskyldu hans.  Allir eru meðvirkir og flæktir í lygahringinn með einum eða öðrum hætti.  Nú er sjúklingurinn kominn í meðferð, en því miður hjá fjölskyldu sinni og ekki séð fyrir endalok lygahringsins.  Íslendingar telja sig þó vera mikla snillinga í meðferð áfengissjúklinga (það er reyndar sama hvað þeir taka sér fyrir hendur, alltaf sama snillin) þannig að kannski verður sjúklingurinn útskrifaður og komin í mikil uppgrip þegar næsta síldatorfa rennir í hlað. 
mbl.is Staða þjóðarbúsins verri en opinberar tölur sýna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oh, did you mean cash?

Er þetta leiðin út úr þessu Icesave dæmi?
mbl.is Flugumferð bönnuð um Bretland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prentvilla - ábending frá bretum

Mér hefur verið falið að koma á framfæri leiðréttingu frá bretum og hollendingum;  "we said cash - not ash!

Getur verið að þetta sé viljandi misskilningur?  Svör óskast.


mbl.is Fljúga með öskusýnin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slagurinn að byrja

Þá eru slagsmálin að byrja.  Gera má ráð fyrir að auðmenn séu búnir að vopna sig í bak og fyrir með lögfræðingum og beiti sömu snilldinni í undanbrögðum og þeir notuðu í sjálfu ráninu.  Þetta verður mjög spennandi eflaust og ég vona að sérstakur saksóknari sé jafn vel vopnaður.
mbl.is Sérstökum saksóknara skylt að veita lögmanni gögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mafíuríkið Ísland

Eftir því sem maður fær meira að vita um hvernig stjórnsýslu þessa lands er/hefur verið háttað birtist manni æ skýrar mafíustíllinn á þessu.  Eini munurinn er, sem betur fer, er að menn eru ekki bókstaflega drepnir þegar á að ryðja þeim úr vegi.  En annars er allt á þessa bókina fært.  Leynifundir, kunningjar, símtöl og annað baktjaldamakk er frekar reglan en undantekningin þegar stjórna á þessu landi. 

Það er vonandi að þessi skýrsla leiði þjóðina og þá sem sitja við stjórnvölinn í ljós um hversu knýjandi þörfin er að breyta þessum mafíuklúbbi í alvöru ríki með tilheyrandi stofnunum sem treystandi er á.

Ég vona að Alþingi bregðist snarlega við og samþykki setningu landsdóms og tilnefndir aðilar dregnir fyrir dóm eins fljótt og auðið er.  Það þarf að loka þessu máli með dómum.


mbl.is Nei nei, ekkert að gerast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttarríkið Ísland

Manni getur fundist það sem maður vill um Jón Ásgeir og aðra, en það sem hann segir mjög kurteislega hér er algert grundvallaratriði í siðmenntuðu réttarríki.  Auðvitað eiga ráðamenn landsins ekki að stunda svona dilkadrátt fyrir framan sjónvarpsmyndavélar.  Þessi mál á að gera upp í dómstólum og fyrr en dómur fellur á ekki ríkisstjórn landsins, alþingismenn eða embættismenn að koma með digurbarkalegar yfirlýsingar um málsatriði eða hlutaðeigandi. 

Bloggarar geta auðvitað gelt sig hása, svo fremi sem ekki varðar við lög um meiðyrði.  

 Svo er bara að sjá til þess að dómstólar vinni sína vinnu samkvæmt lögum.  


mbl.is Biður Steingrím að gæta orða sinna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Manneskjan

Það þarf ekki að mannskepnunni að spyrja.  Eitt er það þó sem vefst eilítið fyrir mér; hvort er það letigenið eða græðgisgenið sem breytti mannapanum í manneskju? 
mbl.is Rollur sem rýja sig sjálfar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prófarkalestur

Það kæmi ekki að sök að blaðamenn læsu tekstann yfir áður en hann er settur út.
mbl.is Valur og Haukar eiga möguleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband