Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010

Ærleg laun

Þessi 1000 pund á viku er svona ekkert ósvipað og við dauðlegir stritarar þiggjum í laun.  Enda hljóta mæður okkar allar að vera bálreiðar þessum fáránlegu fjárfestingar-stælum í okkur. 

Þessi maður hugsar greinilega ekki eins og okkar Eiður.  Mamma Eiðs hlýtur að vera ánægð.  Þessi Mido heldur greinilega að aðalatriðið sé að spila fótbolta og skilur greinilega ekki að það eru bara smástrákar sem hugsa þannig.  Alvöru menn semja um alvöru laun á alvöru varamannabekkjum.  Svo geta smástrákarnir sparkað bolta fyrir "skít og ekki neitt".

 

Ég hef ekki tíma til þess að þrasa þetta meira.  Verð að sinna fjárfestingunni.


mbl.is Mamma skammaði mig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband