Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Fleiri í afneitun

Það eru fleiri þjóðir en íslendingar í afneitun. En ég veit ekki hvort okkur sé nokkur huggun í því.
mbl.is Tyrkir vilja sækja Söruh Ferguson til saka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myrkraverk

Þessur mætu menn fjölmiðlanna vita það eins og allir aðrir, og jafnvel betur, að ísraelsmenn eru með öllu daufheyrðir á gagnrýni. Þeir eiga meira að segja á hættu að vera úthrópaðir hatursmenn gyðinga með þessu dónalega athæfi sínu. Togað verður í nokkra góða spotta, stólar hitna og þverrifur lokast. Langtímaáætlun ísraelsmanna getur haldið áfram sem fyrr. En ég vona þó ekki. Það má ekki láta þetta gerast hljóðalaust.

Ég mótmæli allur!


mbl.is Gagnrýna Ísraelsstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snjallræði Davíðs

Það er ekki skrýtið að Davíð skuli vilja skipa sér í flokk slökkviliðsmanna. Vandfundnari er starfsstétt sem nýtur meira trausts meðal almennings. Hvað heitir það annars þegar einhver kveikir elda til þess að fullnægja þrá sinni til þess að slökkva þá og bjarga fólki? Getur verið að þetta syndróm geti snúið að þjóðarheill? Erum við með fyrsta tilfellið í heiminum á okkar höndum? Ég get ímyndað mér að það sé erfitt að finna meðferð fyrir svona sértækt tilfelli.
mbl.is Yfir 96% segjast treysta slökkviliðsmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær segir þessi maður satt?

Ég finn fréttir viðsvegar um að búið sé að afgreiða þetta mál í IMF.

http://e24.no/makro-og-politikk/article2756418.ece

 

http://www.dv.is/frettir/2008/11/6/imf-samthykkir-beidni-islendinga/

 

??? 


Ha?

Hvað ertu að segja maður? Þurfum við að vita það, Geir? Endalaus lausmælgi er þetta alltaf hreint í þessum ráðamönnum, það er bara engann vinnufrið að fá. Getur einhver skipt um bleyju á honum kallinum? Ég held að hann sé búinn, en kannski er meira á leiðinni.
mbl.is IMF-beiðni frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband