Færsluflokkur: Bloggar

Bank of England?

Eru bretar í þessum hópi "fyrrverandi" vina? Er þessi staða ekki ágætis átylla fyrir breta til þess að vera Seðlabanka liðlegir með gjaldeyrislán? Kannski eru þeir ennþá svekktir á þorskastríðinu og finnst að við eigum bara að steikjast í eigin fitu. Sterkur leikur hjá Pútín, en er ekki líka hægt að tala við Ahmadinejad? Hann vantar vini um þessar mundir.
mbl.is Ernst&Young tekur yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgð

Eftir spurningunni um það hvernig við íslendingar björgum okkur út úr þessari klípu, kemur væntanlega spurningin um hverjir bera ábyrgð á þessum ófærum. Verður hægt að draga menn fyrir rétt og dæma? Ég trúi ekki að íslendingar láti hafa sig að fíflum og kenna heimskreppunni um hvernig málin standa. Ekki var það heimskreppan sem gerði íslenskum bönkum það kleift að taka lán að jafngildi 12-faldrar þjóðarframleiðslu. Heimurinn hlær að okkur.
mbl.is Skuldir bankanna þjóðinni ofviða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa ber i huga

að íslenska liðið fer alltaf erfiðustu leiðina. Í þessu tilfelli hlýtur það að innibera töp í næstu leikjum og hangandi hár að komast áfram. Ég vona þó ekki að svo sé heldur haldi þessir drengir ótrauðir áfram á sigurbrautinni. Kannski fáum við verðlaunapening í þetta skiptið? Enda búnir að bíða lengi.
mbl.is Ísland fór hamförum gegn Þjóðverjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hoax

Fyrir þá sem fygjast spenntir með fótamálinu er rétt að upplýsa um að sjötti fóturinn hefur reynst vera platfótur og kannski plattfótur þar að auki. http://www.ctv.ca/servlet/ArticleNews/story/CTVNews/20080619/sixth_bc_foot_080619/20080619?hub=TopStories
mbl.is Sjötti mannsfóturinn finnst í Kanada
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimsmeistarar í væli

Tiltölulega fyrirsjáanlegt væl úr þessari átt. Eins og þegar Svíþjóð og Danmörk gerðu jafntefli 2-2. Hvenær læra þessir menn að halda kjafti og bara spila fótbolta eins og Hollendingar gera? Dómarar gera stundum mistök. Shit happens. Get over it. Svona væluskjóðuháttur er óíþróttamannslegur og dæmigerður fyrir spilltustu knattspyrnuþjóð í heimi.

Það má reikna með að nú fari ítalir að gera úr því skóna að hollendingar ÆTLI að tapa fyrir rúmenum til þess að losna við ítali. Vælivæli allir á móti okkur huhuhu. Svo tapa hollendingar auðvitað og ítalir fjúka í loft upp og hóta alls konar aðgerðum og lögsóknum. Á endanum reka þeir svo þjálfaran þegar enginn annar nennir að hlusta á þetta væl í þeim. Svo geta þeir farið heim að múta dómurum og finna upp ný bellibrögð.

Ég vona að hollendingar tapi fyrir rúmenum þótt ég haldi með þeim.


mbl.is Ítalir ósáttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brynvarðar jarðýtur og afhausunarvélar

Einhverntíman státuðu íslendingar sér af því að hafa fundið upp afhausunarvélina, sem hlýtur að skrifast í söguna sem dæmigerð íslensk uppfinning. Ég efast ekki um að ísraelar geti státað af fleiri uppfinningum en við íslendingar enda er þar framúrskarandi menntafólk á hverju strái. Ég tel hinsvegar að brynvarða jarðýtan hljóti að teljast vera svar ísraela við afhausunarvélinni og einstaklega dæmigerð ísraelsk uppfinning. Mér dettur ekki neitt annað í hug sem er dæmigerðara fyrir þetta land. Tillögur?
mbl.is Olmert: Nær átökum en friði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert er nýtt undir sólinni

Hér má líta svipaðar byggingar;

http://www.containercity.com/home.html


mbl.is Vilja reisa íbúðablokk úr gámum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á ég að hlægja eða gráta

Það er svo augljós veruleikaafneitun að hnykkja út með þetta sé samt allt aröbunum að kenna. Það næst aldrei friður á þessu svæði á meðan stjórnvöld Ísrael lifa í þessari sjálfsblekkingu. Báðir aðilar þurfa að líta í eigin barm og taka sinn skerf af skömminni. Þangað til það gerist verður allt við það sama.
mbl.is Ísraelsríki sextíu ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður með skoðun

Til hvers halda menn annars að maður sé með varaborgarstjóra. Til skrauts? Ef ekki væri fyrir svona fólk sem tekur vinnuna sína alvarlega væri þessi heimur m.a. fullur af forljótum skúlptúrum í fáránlegum litum. Þessi maður á mína virðingu og íslenskir stjórnmálamenn og embættismenn mættu læra af þessu.
mbl.is Ekki réttur litur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræsnari

Þetta hlýtur að vera hámark hræsninnar. Ég á ekki orð yfir þessum ummælum.

„Sorg okkar er sönn og mun raunverulegri en uppgerðarsorg hryðjuverkasamtakanna sem stofna fólki sína í slíka hættu,”

Sannleikurinn er sá að ísraelski herinn skaut flugskeyti á hús þessarar fjölskyldu sem lét lífið en enginn "vígamaður". Þau sátu og snæddu morgunmat í ró og næði, fjögur börn og móðir þeirra. Ennfremur segir þessi maður að hermenn hans hafi verið "að reyna" að vernda ísraelska borgara. Til þess að vernda ísraelska borgara þarf greinilega að drepa konur og börn í palestínu. Það fylgir sögunni að enginn ísraeli var í hættu staddur fyrir utan einn hermann sem meiddist lítilega.

Hér fylgir ljóð sem bloggvinur minn Svartagall fann fyrir okkur;

Slysaskot í Palestínu (Í víngarðinum) eftir Kristján frá Djúpalæk

Lítil stúlka. Lítil stúlka.
Lítil svarteyg dökkhærð stúlka
liggur skotin.
Dimmrautt blóð í hrokknu hári.
Höfuðkúpan brotin.

Ég er Breti, dagsins djarfi
dáti, suður í Palestínu,
en er kvöldar klökkur, einn,
kútur lítill, mömmusveinn.

Mín synd er stór. Ó, systir mín.
Svarið get ég, feilskot var það.
Eins og hnífur hjartað skar það,
hjarta mitt, ó, systir mín,
fyrirgefðu, fyrirgefðu,
anginn litli, anginn minn.

Ég ætlaði að skjóta hann pabba þinn.

Þetta ljóð sýnir okkur að þetta er ekkert nýtt í Palestínu, nema hvað hér má skipta út Breta með ísraela.


mbl.is Olmert vísar allri ábyrgð á Hamas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband