Ábyrgð

Eftir spurningunni um það hvernig við íslendingar björgum okkur út úr þessari klípu, kemur væntanlega spurningin um hverjir bera ábyrgð á þessum ófærum. Verður hægt að draga menn fyrir rétt og dæma? Ég trúi ekki að íslendingar láti hafa sig að fíflum og kenna heimskreppunni um hvernig málin standa. Ekki var það heimskreppan sem gerði íslenskum bönkum það kleift að taka lán að jafngildi 12-faldrar þjóðarframleiðslu. Heimurinn hlær að okkur.
mbl.is Skuldir bankanna þjóðinni ofviða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ríkisstjórnin verður að segja af sér. Þrátt fyrir að vissir aðilar innan
hennar  hafi reynt sitt besta. Varaformaðurinn sem gellur nú hvað hæst, svo
enginn  má annar að komast, ætti að skammast sín. Ráðherrann skyjaði ekki
  stöðu þjóðarinnar fyrir mánuði síðan. Lét mig og mína borga undir rassinn
á sér og sínum maka, sem er á ofurlaunum frá bankanum, luxus-ferð  til
Kína ( ferð númer tvö) Taktu pokann þinn strax. Það treystir þér enginn.
Kolbrún Bára

kolbrún Bára (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband